news

Fréttir

17 maí 2017

Kæru foreldrar

Hjá okkur er allt gott að frétta.

Við njótum þess að vera úti eins mikið og hægt er og þegar veður er gott ætlum við að færa hópastarf út þannig að það væri mjög gott að reyna að vera komin í leikskólann um 9:30 ef hægt er þannig að allir fá að njóta hópastarfsins úti.

Við minnum á starfsdaginn sem verður föstudaginn 19. maí en þá verður lokað hjá okkur á sólgarði.

Kær kveðja Undraland.