news

Nýjar fréttir

08 Feb 2017

Kæru foreldrar.

Í febrúar eiga 3 börn afmæli hjá okkur. Viðar, Laufey og Ísak Logi. Þau eru öll að verða eins árs og við óskum þeim til hamingju með dagana :)

Þegar börnin eiga afmæli á Sólgarði, þá mála þau sína kórónu og foreldrar koma með ávexti og við höldum smá afmælisveislu. Myndir af afmælisbörnum koma í lok þessara viku og í næstu viku.

Í hópastarfi í þessari viku erum við búin að vera að skoða bækur, mála, lita á vegg í ævintýralandi og skoða kartöflumjöl, legokubba og dollur og lok.

Við förum litið út í þessari viku vegna veðurs og eigum við í staðinn kósýstundir inni eftir hópastarfið.


Kær kveðja Undraland