Sólgarður
Eggertsgata 8, 102 Reykjavík
Sími: 551-9240, Netfang: solgardur(hjá)fs.is
Leikskólastjóri: Sigríður Stephensen
Aðstoðarleikskólastjóri: ÁstaRós Snævarsdóttir
Að byrja í leikskóla – Aðlögun Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barn og foreldra þess. Aðlögun er mikilvæg, fyrir börn jafnt sem foreldra. Þau kynnast í sameiningu sem flestum þáttum í starfi leikskólans, nýjum húsakynnum, starfsfólki og leikfélögum. Mikilvægt er að góð samvinna og gagnkvæmur trúnaður sé á milli foreldra og starfsfólks en trúnaður er forsenda þess að leikskóladvölin verði barninu ánægjuleg og árangursrík. Mikilvægur þáttur í þessari samvinnu er aðlögun, þar sem lagður er hornsteinn að góðu samstarfi foreldra og starfsfólki leikskóla. Í aðlögun er lagður grunnurinn að góðu samstarfi og vellíðan barns í leikskóla. Börn þurfa mislangan tíma til að aðlagast nýju umhverfi, kynnast öðrum börnum starfsfólki leikskólans og læra að þekkja dagskipulagið . Engir tveir eru eins og aðlögunartíminn er því einstaklingsbundinn. Oftast er þó miðað við þrjá virka daga í aðlögun.
Dagskipulagið 07:45 Leikskólinn opnar 07:45-08:15 Tekið á móti börnunum 08:15-08:50 Morgunverður 08:45-10:30 Frjáls leikur/hópastarf/útivera 10:30-10:45 Salerni/bleyjuskipti 10:45-11:30 Hádegisverður 11:30-14:00 Hvíld/róleg stund í sal 13:30-14:00 Salerni/bleyjuskipti 14:00-14:15 Samverustund á deild 14:15-15:00 Síðdegishressing 15:00-16:00 Útivist/frjáls leikur/leikskólinn lokar Hádegi Á milli kl. 10:30 og 13:00 erum við að undirbúa matinn, borða og í hvíld og sjáum við okkur þá ekki fært að taka á móti börnunum, nema um það hafi verið rætt sérstakega við starfsfólk. Hvíldin Börnin leggja sig inni á dýnu. Lyf Ef barnið þarf að taka lyf er æskilegt að lyfjagjöf fari fram heima, nema annað sé bráðnauðsynlegt. Þau börn sem eru með fæðuofnæmi og þurfa að vera á sérfæði, þurfa í öllum tilfellum að koma með vottorð frá lækni því til staðfestingar. Sumarleyfi Leikskólinn er lokaður í fjórar vikur að sumri. Fatnaður Við viljum biðja foreldra að tæma hólf barnanna í fataklefanum á föstudögum, svo hægt sé að þrífa hólfin. Mikilvægt er að allur fatnaður barnanna og allt sem tilheyrir vögnum/kerrum sé vel merkt t.d. svuntur, flugnanet, teppi og regnyfirbreiðslur. Þar sem margir eru með eins, er mjög erfitt fyrir starfsfólk að þekkja það sem ekki er merkt. Upplýsingar til foreldra Upplýsingatöflur eru fyrir hverja deild í fataklefa. Þar koma fram skilaboð frá starfsfólki til foreldra. Starfsdagar og námskeiðsdagar Eru 6 á hverju ári. Reynt er að koma til móts við foreldra og hafa þessa daga í kringum helgi. Starfs-og námskeiðsdagar eru auglýstir með góðum fyrirvara. Foreldrafundur Foreldrafundur er haldinn einu sinni á ári, á haustin. Foreldraviðtal Skipulögð foreldraviðtöl eru einu sinni á ári, að vori. Foreldrum stendur þó alltaf til boða að fá viðtal við deildarstjóra á deild barnsins. Annað: Mikilvægt er að foreldrar láti vita ef annar aðili sækir barnið í leikskólann. Einnig óskum við eftir því að ef barnið mætir ekki í leikskólann vegna veikinda eða leyfis, hafi foreldrar samband og tilkynni fjarveru barnsins. Reglur ungbarnaleikskóla stúdenta
|