news

.......og ekki gleyma skólavottorðunum

09 Ágú 2016

.....og ekki gleyma skólavottorðunum fyrir 15. ágúst. Allir skila skólavottorðum en mikilvægt er fyrir þá foreldra sem eru báðir í námi að skila fyrir 15. ágúst til að fá afslátt á dvalargjöldum

Námsmannaafsláttur
Afslátt af námsgjaldi fá hjón og sambúðarfólk sem bæði uppfylla eftirtalin skilyrði:

eru í háskólanámi og skráð í að lágmarki 22 ECTS einingar á önn. Taka þarf fram á vottorði frá skóla að um fullt nám sé að ræða;
eru í framhaldsskóla og skráð í fullt nám að lágmarki 15 einingar á önn. Skila skal skólavottorði fyrirfram fyrir hverja önn þar sem fram koma upplýsingar um einingafjölda og staðfesting á því að um fullt nám sé að ræða.
Nám sem tekið er gilt er það sama og nám sem lánshæft er hjá LÍN.
Eignist hjón eða sambúðarfólk, sem notið hafa námsmannaafsláttar, barn, geta þau sótt um að fá námsmannaafslátt á meðan fæðingarorlof stendur, þó að hámarki í níu mánuði þrátt fyrir að annað foreldrið uppfylli ekki framangreind skilyrði um lágmarksfjölda eininga á önn enda fylgi umsókn staðfesting frá fæðingarorlofssjóði um að það foreldri sem ekki uppfyllir skilyrði námsmannaafsláttar sé í fæðingarorlofi. Afsláttur reiknast frá þeim degi sem skólavottorðum er skilað til leikskólastjóra leikskóla barnsins. Þetta á einnig við um framlag skóla- og frístundasviðs til sjálfstætt starfandi leikskóla vegna vistunar reykvískra barna.