news

Öskudagur

28 Feb 2017

Á morgun, Öskudag er náttfatapartýdagur hjá okkur á Sólgarði. Börnin mega mæta á náttfötunum eða búningum í skólann en við minnum á að taka önnur föt með svo við getum farið út að leika. Þau börn sem það vilja verða andlitsmáluð, Við leikum okkur með blöðrur og sápukúlur, förum í leiki og syngjum saman. Andlitsmálningin okkar er ofnæmisprófuð en endilega látið okkur vita ef þið viljið ekki að ykkar barn sé málað.