news

Blár apríl

03 Apr 2017

Alþjóðlegur dagur einhverfunnar er á næsta leiti og þriðjudaginn 4. apríl næstkomandi hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja þannig athygli á málefnum einhverfra barna en blái liturinn hefur fest sig í sessi sem litur einhverfunnar um heim

Markmið bláa dagsins er að vekja athygli á einhverfu og fá landsmenn alla til að sýna einhverfum stuðning sinn. Með aukinni vitund og þekkingu á einhverfu byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins

Hingað til hafa leik- og grunnskólar landsins haldið upp á bláa daginn með miklum glæsibrag og um leið staðið að fræðslu og umræðu um einhverfu innan veggja skólans. Það er einlæg von okkar að svo verði einnig í ár. Margir hafa brugðið á það ráð að setja myndir á instagram og facebook og merkja þær með myllumerkinu #blarapril sem hefur gætt daginn skemmtilegum blæ og hjálpað til við að breiða út þennan jákvæða boðskap. Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í bláu þriðjudaginn 4. apríl. Stöndum saman og fögnum fjölbreytileikanum. Því lífið er blátt á mismunandi hátt!