Frétt vikunnar
02 Mar 2017
Kæru foreldrar!
Vikan hefur verið viðburðarrík hjá okkur. Á Bolludaginn fengum við að sjálfsögðu bollur, á Sprengidaginn var saltkjöt og baunasúpa á boðstólnum að íslenskum sið og síðast en ekki síst héldum við Öskudaginn hátíðlegan. Börnin komu ýmist í náttfötum eða búningum og höfðum við öll gaman af.
Í vikunni byrjaði hjá okkur ný stúlka hún Sóley og bjóðum við hana og foreldra hennar hjartanlega velkomna á Putaland.
Það eru komnar inn nýjar myndir, m.a. frá Öskudeginum!
Kær kveðja,
Putaland :)