Fréttir af vikunni
16 Feb 2017
Kæru foreldra
Í síðustu viku byrjaði nýr starfsmaður hjá okkur. Hann heitir Sturla og bjóðum við hann velkominn til okkar. Börnunum finnst rosalega gaman að fá annan karlmann inn á deild.
Núna eru veikindin vonandi búin hjá okkur. Meira að segja var full mæting hjá okkur á þriðjudaginn og mikið stuð. Gaman að sjá loksins alla saman aftur :)
Bráðum kemur Öskudagur og hér á Sólgarði höldum við uppá hann sem náttfatadag, en við skrifum meira um það þegar hann nálgast.
Bless í bili
Undraland