news

Vikan

02 Mar 2017

Kæru foreldrar.

Það er mikið fjör búið að vera hjá okkur siðustu daga. Á bolludaginn fengu krakkarnir litlar bollur sem þeim fannst rosa gott. Á sprengidag fengum við saltkjöt og baunasúpu og flestum fannst hún rosalega góð. Og í gær heldum við náttfatadag og börnin fengu andlistsmálningu. Eftir kaffi fóru stóru krakkarnir í salinn þar sem voru blöðrur og tónlist og þau fengu ávexti. Hinir voru inná deild þar sem var lika smá partý.

Kerfið í Karellen er eitthvað bilað núna og við munum setja öskudagsmyndir inn á síðuna um leið og það er komið i lag.

Í gær byrjaði nýr strákur hjá okkur á deildinni. Hann heitir Logi Liekki og bjóðum við hann velkominn.

Kær kveðja Undraland