news

Fréttir vikunnar

23 Feb 2017

Kæru foreldrar.

Í næstu viku er bæði Bolludagur og Öskudagur á Sólgarði. Bolludagur er á mánudaginn og Natalia kokkurinn okkar ætlar að baka fyrir krakkana litlar, sætar bollur :) Á miðvikudaginn er svo Öskudagur en þá höldum við á Sólgarði náttfatapartý! Það væri gaman ef börnin kæmu í náttfötum í leikskólann. Það verður fjör hjá okkur - blöðrur, sápukúlur og andlitsmálning fyrir þá sem vilja.

Að lokum viljum við minna foreldra á að hafa nóg af útifötum í hólfinu þar sem við reynum að fara út eins oft og hægt er.

Kær kveðja,

Undraland